Santal Dreams - Designer Collection
Santal Dreams er heillandi blanda sem flytur þig í draumkenndan griðastað þar sem hlýja og ró ráða ríkjum.
Ilmurinn opnar með mjúkri fjólu og kryddaðri kardimommu sem gefa honum strax dularfullan og fágaðan blæ. Í hjartanu mætast púðurkennd íris, þurr papýrus og ambrox sem skapa nútímalega, hlýja dýpt. Grunnurinn er svo þar sem galdurinn gerist: sedrusviður, leður og silkimjúkur sandalviður umvefja rýmið með róandi og lúxus stemningu sem situr lengi.
Hlýr, viðarkenndur og dáleiðandi. Santal Dreams er fullkominn fyrir þá sem elska djúpa og fágaða ilmi á heimilið.
ILMNÓTUR:
Toppnótur: Fjóla, kardimomma
Hjartanótur: Íris, papýrus, ambrox
Grunnnótur: Sedrusviður, leður, sandalviður
Eiginleikar:
Framleitt í Bandaríkjunum
Vegan og cruelty-free
Öruggt fyrir gæludýr
IFRA vottað
Án parabena, súlfata og jarðolíuefna
Þér gæti einnig líkað