Þjónustuskilmálar

Terms of Service

Netverslunin Lunora.is er rekin af: Daria ehf Kt. 630997 2919 VSK-númer: 56039 Fjarðargata 13-15, 220 Hafnarfjörður lunora@lunora.is +354 7816645

Greiðslumátar Hægt er að greiða með kredit- og debetkorti í gegnum örugga greiðslusíðu Saltpay, millifærslu, Netgíró og Aur.

Afhending vöru Allar pantanir eru sendar með Dropp.is. Pantanir afgreiddar samdægurs ef pöntun berst fyrir kl. 15:00, annars morguninn eftir. Sé vara ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma.

Af öllum pöntunum dreift af Dropp.is gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Dropp.is. Daria ehf ber enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni á vöru í flutningi.

Viðskiptavinir eru hvattir til að ganga úr skugga um að póstkassar séu rétt merktir. Hafi pöntun ekki borist innan viku skaltu hafa samband á lunora@lunora.is

Verð og sendingarkostnaður Öll verð eru með 24% VSK. Sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram:

- Höfuðborgarsvæðið: 790 kr

- Landsbyggðin: 990 kr

Skilaréttur Veittur er 14 daga skilaréttur gegn framvísun sölureiknings. Vara þarf að vera:

- Ónotuð og í fullkomnu lagi

- Í upprunalegum óskemmdum umbúðum

- Innsigluð vara má ekki hafa rof á innsigli

Við skil er miðað við upprunaleg verð, nema vara sé á útsölu – þá er miðað við verð þann dag sem henni er skilað. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Ef kaupandi vill ekki skipta vöru fær hann inneignarnótu í formi kóða, gildur í eitt ár frá útgáfudegi.

Gölluð vara Sé vara gölluð fær viðskiptavinur nýja vöru í staðinn og við greiðum allan sendingarkostnað. Endurgreiðsla er einnig möguleg ef þess er krafist.

Persónuvernd Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar gefnar upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila. Sjá nánar í Persónuverndarstefnu okkar.

Lög og varnarþing Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjanes. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup.

Daria ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, og að hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.