Algengar spurningar

Hvaða ilmtæki hentar mínu rými?

L45 hentar minni rýmum og þekur allt að 45 m². L100 hentar stærri rýmum og þekur allt að 120 m². L45 tengist beint í innstungu. L100 er með endurhlaðanlegri rafhlöðu og getur einnig verið í sambandi við rafmagn meðan það er í notkun.

Hvað er kaldúðunar ilmtæki?

Lunora ilmtækin nota nebulizer tækni sem brýtur ilmolíu niður í örfínar agnir án hita og vatns. Ilmurinn helst hreinn og náttúrulegur og dreifist jafnt um rýmið, allt að 120 fermetrar.

Er þetta öruggt fyrir börn og gæludýr?

Já. Tækin nota engan hita og ekkert vatn, þannig að engin bruna- eða rakahætta er til staðar. Ilmolíurnar okkar eru án glýkóls, parabens og gervilitarefna og uppfylla kröfur IFRA

Hversu lengi endist ilmolían?

Við lágmarksstillingu endist 100 ml olía í 2-4 mánuði. Þú getur stillt notkun og tímasetningar í Lunora appinu til að fá sem mest út úr hverri áfyllingu.

Hvernig virkar appið?

Sæktu Lunora Scent Diffuser appið (Android og iOS), tengdu tækið með Bluetooth og stýrðu ilmstyrk, tímasetningum og daglegum áætlunum beint í símanum. Til dæmis að tækið kveiki alltaf á sér áður en þú kemur heim úr vinnu og slökkvi á sér þegar þú ferð að sofa. Hægt er að stilla alla vikudaga

Sjá skref-fyrir-skref leiðbeiningar fyrir appið

Þarf að blanda vatni við ilmolíuna?

Nei, ilmtækin nota ilmolíuna beint, án vatns eða hita.

Hvernig þríf ég ilmtækið?

Keyrðu tækið með hreinsivökva í 10–15 mínútur. Sjá nánari upplýsingar í leiðbeiningum fyrir tækið.

Hvert sendið þið og hvar er hægt að skoða vörurnar?

Við sendum um allt Ísland með Dropp. Sending á höfuðborgarsvæðinu er 790 kr og 990 kr á landsbyggðina. Einnig er hægt að skoða ilmtækin og ilmolíurnar í versluninni Daría & Herrar í Firðinum, Hafnarfirði.

Hvaða ilmolíur henta?

Ilmolíur sem eru hannaðar fyrir Nebulizer-Kaldúðunar tæki, t.d. ilmolíurnar sem fást hjá okkur. Olíurnar mega ekki vera of þykkar.

Hentar þetta fyrir heimili eða eingöngu atvinnunotkun?

Bæði! Lunora er hönnuð fyrir kröfuharðar aðstæður, hótel, spa, verslanir og skrifstofur, en hentar jafnframt fullkomlega á heimili. Bluetooth-appið gerir heimanotkun sérstaklega þægilega.

Hversu mikla olíu notar tækið?

Lunora-tækið notar um 0,05–0,5 ml á klukkustund eftir stillingum. Við lágmarksstillingu endist 100 ml olía í 2–4 mánuði. Tímaforritun í appinu hjálpar við að stýra notkun og einnig er hægt að stilla hversu lengi tækið úðar hverju sinni og með hversu miklu millibili. Gott er að byrja á lægstu stillingu.