Kaldúðunartæki eða ilmolíulampi, hver er munurinn?

Kaldúðunartæki eða ilmolíulampi, hver er munurinn?

Ilmtæki eða ilmolíulampi - hvað hentar þér best?

Ilmur er eitt af því fyrsta sem við tökum eftir þegar við komum inn í rými. Hann setur tóninn, skapar stemninguna og hefur bein áhrif á líðan okkar. En þegar kemur að því að velja rétta leiðina til að fylla rýmið þitt af ilm, er gott að þekkja muninn á þeim tækjum sem í boði eru.

Hvað er kaldúðunartækni og hvernig virkar hún?

Kaldúðunartæki (nebulizer) nota nútímalega nálgun við ilmdreifingu. Í stað þess að nota vatn og hita, brýtur tækið hreina ilmolíu niður í örsmáar nanó agnir sem eru léttari en loft og dreifir þeim um umhverfið. 

Einfaldlega: ekkert vatn, enginn hiti, hreinn ilmur.

Fimm ástæður til að velja kaldúðunartækni

1. Hreinn og óblandaður ilmur

Þar sem engu vatni er blandað í helst ilmolían óbreytt. Þú upplifir ilminn nákvæmlega eins og hann var hannaður.

2. Enginn raki eða gufa

Þar sem ekkert vatn fer í tækið þá helst raki herbergisins óbreyttur, engin hætta á bakteríumyndun eða myglu.

3. Ilmurinn dreifist betur

Eitt kaldúðunartæki getur fyllt stóra stofu, opið rými eða verslunargólf á meðan hefðbundinn ilmolíulampi hentar frekar í minni rýmym

4. Minna viðhald

Án vatns er engin hætta á kalkútfellingu eða bakteríum. Tækið þarf mun minni umhirðu. 100ml af ilmolíu dugar í 2-4 mánuði og engin þörf á að fylla á daglega. Stilltu áætlun í appinu og þú þarft ekki að spá í tækinu í mánuðum saman

5. Snjallstýring

Lunora L100 ilmtækið tengist með Bluetooth appi. Þú getur stillt ilmstyrk, sett upp tímaáætlanir fyrir hvern dag og kveikt eða slökkt hvar sem þú ert á heimilinu. 

Hvernig virka hefðbundnir ilmolíulampar?

Flestir þekkja klassíska ilmolíulampann: þú hellir vatni í tankinn, bætir við dropum af ilmolíu, og  tækið býr til úða eða gufu sem ber ilminn út í loftið. Þetta virkar, en það eru nokkrir gallar sem margir átta sig ekki á:

Vatn breytir ilminum. Þegar ilmolía er blönduð saman við vatn þynnist hún út. Ilmurinn verður veikari og ónákvæmari en upprunalega blandan var hönnuð til að vera.

Hiti skemmir viðkvæm efni. Margar hágæða ilmolíur innihalda viðkvæm efnasambönd sem brotna niður við hita. Þú færð ekki sömu ilmupplifun og framleiðandinn ætlaðist til.

Meira viðhald. Vatnstankar þurfa reglulega hreinsun til að koma í veg fyrir kalk og bakteríuuppbyggingu. Ef þú sleppir hreinsuninni getur tækið byrjað að dreifa óhreinu lofti.

Hverjum hentar kaldúðunartæki?

Stutt svar: flestum. En sérstaklega ef þú:

- Vilt að heimilið þitt ilmi alltaf vel án fyrirhafnar

- Rekur verslun, skrifstofu eða hótel og vilt skapa sérstakt andrúmsloft

- Hefur fengið nóg af því að fylla á vatnstankinn

- Vilt stjórna ilminu beint úr símanum hvar sem þú ert á heimilinu

 

Kaldúðunartækni er ekki bara önnur útfærsla á sama hlut. Þetta er næsta skref. Þegar þú hefur prófað hreina, óblandaða ilmupplifun sem dreifist jafnt um rýmið, er erfitt að fara til baka.

Ilmtækin

Ilmolíurnar